Undirsíđukubbur

Auglýsing

Klukkan

Könnun

Hefur ţú komiđ í Sjónvarpinu?

Graduation!! I am coming home again

03. maí 2008 klukkan 16:39



I tilefni af Graduation feelings sem ég er í .... í dag... þá langaði mig til þess að deila þessu ágæta lagi með ykkur.

Kveðja af Fulton Stræti Brooklyn
Erlendur Kári Kristjánsson
1 athugasemd

GAS GAS GAS.. hressandi

28. apríl 2008 klukkan 16:53
Erlendur Kári Kristjánsson
Engin athugasemd

Bara svona ađeins ađ peppa upp stemminguna...

23. apríl 2008 klukkan 13:47
Erlendur Kári Kristjánsson
Engin athugasemd

Skíđa og vélsleđa helgin mikla..!!!!!!!!!!!!!!

12. mars 2008 klukkan 01:25
Já Sæl!!!!!!!!!! og Sælir!!!!!!!!!

Já það er alveg kominn tími til þess að blogga aðeins um eina rosalegustu helgi sem ég hef upplifað.....

Allavega ... ferðin byrjaði með lestarferð upp á 42 stræti Manhattan á Port authority bus terminal þar sem rúta 302 beið mín 8:15 til þess að ferja mig heim til Zúzönnu vinkonu minnar í New Jersey... eftir klukkutíma rútuferð þá kom ég heim til Zúzönnu og við pökkuðum í bílinn og lögðum af stað Upstate New York í hús sem familían hennar á við Lake Luzern. Við upphaf ferðar var aðeins byrjað að snjóa ..en svo sem ekkert til þess að hafa áhyggjur af .... því að hersveitir trukka skafa snjóinn og dæla salti yfir allt saman.. en eftir því sem leið á ferðina og eftir því sem við fórum lengra frá þéttbýlinu þá minnkaði snjómoksturinn og snjókoman jókst...og endaði með algjörum snjóstormi....en það aftraði vinkonu minni ekkert við að halda sig við 60mílur á klukkustund.... sem var svo sem allt í lagi... ef hún hefði verið á jeppa á mícróskornum dekkjum og nöglum...og á endanum byrjaði bíllinn að snúast og hvað gerði hún .. jú hún kloss lagði á hann í hvert skipti... og hvað gerðist... jú fyrstu 360 gráðurnar urðu að veruleika frá annari akrein til vinstri og alveg yfir og bamm utan í vegrið og annar snúningur .... þar sem við horfðum á risa trailer trukk fara fram hjá okkur og svo skullum við aftur utan í vegriðið og afturstuðarinn fauk af ... síðan runnum við á hlið inn á frárein af hraðbrautinni.... shji púff....já sæll........ allt sagt á íslensku ... þá sagði ég ...are you insured... yes... ok then it is fine... but I will drive the rest ......

Við komumst á endanum allaleið í húsið... þar sem allt var á kafi í snjó...og gangstígurinn upp að húsinu var vaðinn upp í mitti af púður snjó... hversu næs er það alveg eins og í einhverju ævintýri ...
Klukkan var orðin 3 um nótt þannig að það var bara gengið frá og farið að sofa...

Daginn eftir var vaknað rétt fyrir klukkan 8 og lagt af stað í sól og logni ... til skíðasvæðis ... að nafni GORE... sem stóð algerlega undir væntingum.... þar var nægur ný fallinn snjór ... og ekki svo mikið af fólki og ég reyndi eftir megni að vinna upp árs skammt af skíðafíkn .. fékk reyndar ekki leigð skíðin sem ég vildi.. en fékk ný cross carve Salomon skíði.. reyndar 178 cm löng... sem er 10cm meira en ég nota vanalega... en var svo sem allt í lagi....

Eftir langan dag.. fórum við á sveitabar sem var á leiðinni heim... þar var enginn bíll fyrir utan ... eingöngu vélsleðar...staðurinn var bókstaflega fullur af fólki sem hafði verið á vélsleða allan daginn... eldur í arninum í þessu líka huggulega bjálkahúsi.... og maturinn var ekki slæmur ... og heldur ekki naumt skammtaður ;)

síðan fórum við heim í hús og ég mokaði innkeyrsluna svo hægt væri að leggja bílnum ... og eins og sést á myndunum ... þá var það ekki létt verk og skaflarnir urðu á endanum hærri en þakið á bílnum ... sitt hvorum meginn við hann...

eftir að hafa gert góðar teygjur og horft á Dumb and dumber .. var farið að sofa.. og vaknað eldsnemma daginn eftir.. sama góða veðrið ...en ekki eins góður fílingur og daginn áður...það er í skrokknum... því líkar harðsperrur...  við ákváðum því að reyna að finna vélsleðaleigu og fara í stutta ferð.... ;) já ekki tók langan tíma að finna leigu... því þær voru á hverju strái .. en við ákváðum að versla við 1/2Mile Ranch Þar tóku á móti okkur einhverjir þeir hressustu Ameríkanar sem hafa orðið á vegi mínum.... Craig .. sem var eigandinn sagði að við yrðum að kaupa minnst 4 tíma leigu... en við sömdum við hann að taka sleðan bara í tvo tíma .. enda fannst mér það alveg feiki nóg... enda vissi ég ekki í hversu mikla vélsleðaparadís ég var kominn í...... Já hann var ekki bara hress hann Craig... heldur einn sá óskipulagðsti maður sem ég hef hitt ;) en á endanum tókst honum að bóka okkur ... já og eftir miklar umræður um ísland... og langa kennslu í að segja "Ríkislögreglustjóri" sem hann sagði að væri eitt það sniðugasta orð sem hann hefði séð.... og tók meira að segja brandara á næsta mann sem labbaði inn... og sagði ... Are you Ríkislögreglustjóri... haha já svona hress var hann...

Í stuttu máli þá var þessi sleða ferð mögnuð ... vorum í samfloti með Amerísku pari sem átti heima í Westchester sem er rétt fyrir ofan Manhattan......við fórum ótrúlegar leiðir .. gegnum skóglendi .. yfir brýr...gegnum bæi... og fyrir þá sem ekki vita... að þá eru menn ekkert að mikla fyrir sér að keyra yfir götur þó að það sé enginn snjór á þeim... en það þýðir ekkert að beygja þegar maður er kominn út á malbikið... anyways.. eftir 2,5 tíma ferð þá komum við að vatni sem heitir Lake George sem er hreint alveg magnað... þar var 30 til 40 cm púðursnjór sem var alveg geggjað að bruna áfram í...og já þar sem snjórinn var sléttur og pakkaður... þá fór sleðinn alveg upp fyrir 60 mílur.... hressandi...

Þegar komið var til baka á 1/2 Mile Ranch ... einhverjum rúmlega 5 tímum síðar ...mættum við Craig... og buðumst til þess að borga fyrir allan tíman .. enda hafði þetta verið miklu skemmtilegra heldur en við hefðum nokkurn tíman búist við... en hann sagði bara að þetta væri ekkert mál og nú kæmum við bara inn og fengum okkur gott að borða .. og hefðum það huggulegt áður en við héldum heim á leið....
það var einmitt rétt eftir þetta sem vinkona mín tilkynnti mér að hún væri sennilega búinn að týna lyklunum að bílnum sínum..... og stuttu eftir það ... að þeir væru týndir ... shji....hressandi... ..allir sem voru þarna á bænunum reyndu að hjálpa okkur með því að hringja út um allt... en það gerist víst ekki mikið í sveitinni á sunnudagskvöldum....þannig að allt kom fyrir ekki.... en þá buðust vinir okkar úr ferðinni til þess að gefa okkur far til Westchester.. og þaðan gætum við tekið lestina niður á Grand central.. og þaðan heim .. það var þegið með þökkum ;)

Það var því lán í óláni að Zúzanna hafði keyrt á ..á föstudaginn því að við gátum náð öllu dótinu okkar úr bílnum því að það var ekki hægt að loka skottinu á bílnum eftir áreksturinn því var síðan pakkað inn í Glænýjan Chevrolet Tahoe sem var með öllum auka búnaði.. Kafteinstólum aftur í og að sjálfsögðu sjónvarpi fyrir farþegana...

Eftir gríðarlega góða máltíð lögðum við síðan af stað til borgarinnar... þó að allir væru sammála um að það væri ekki verra að lengja helgina um allavega einn dag....

Ég settist aftur í kaggan og kveikti á TV inu og horfði á einhverja klikkaða stunt mótorhjólamynd sem var í eigu ... bróður vinar okkar... ;) man ekki nafnið hans.. en eftir nafnið hans er Nhadjastylianos ... sem verður að teljast erfiðara en að bera fram mitt nafn.....þau skutluðu okkur síðan á lestar stöðina og lestin okkar lagði af stað eftir 10 mín sem var frekar heppilegt þar sem maður var orðinn vel þreyttur...

Helgarferðin endaði um klukkan 3 á sunnudags nóttina í íbúð minni að Fulton street Brooklyn ;)



Já og á fimmtudaginn í síðustu viku fór ég aftur í the Criminal Court á 346 Broadway Manhattan ... til þess að taka afleiðingum af mínu hræðilega afbroti... það er að hjóla upp á gangstétt...

Spennan magnaðist eftir vopnaleit og langa biðröð með mörgum misjöfnum karakterum....svona rétt eins og í bíómyndunum... jæja ... loksins kom að mér og ég var tilbúinn með alla ræðuna mína ... þá var mér sagt að í dag væri happa dagurinn minn því að af einhverjum ástæðum væri búið að falla frá ákæru á hendur mér ;) Já sæll.... hehe allavega þá er það komið á hreint.... en í öllu þessu veseni þá var ég nú búinn að vonast eftir smá action.. allavega svona aðeins.. hehe.. allavega segja I am Innocent og allt það


jæja þá er komið nóg af þessu í bili hellingur sem bíður mín.... próf á morgun og dinner annað kvöld í Union league club með bankastjórum íslensku bankanna sem og forsætisráðherra íslands og fleiri góðum og svo er IACC conference á fimmtudags morguninn í Skandinaviu húsinu frá klukkan 9 til 13:00 og síðan próf í international Finance frá klukkan 6-9 ... og Gassi er líka koma í heimsókn á miðvikudaginn og við ætlum að skella okkur í spring break niður til Daytona Flórída í 6 daga sem verður rosalega gott ... sól og sandur.. get bara ekki beðið ..

bið að heilsa í bili... og skrifið endilega í gestabókina... annars hætti ég að nenna þessu ;)

Kveðja

ELLI
Erlendur Kári Kristjánsson
6 athugasemdir

Spring Break .... Daytona Beach

25. febrúar 2008 klukkan 21:06
Já sælir......


Í dag eru ég og Gassi að ganga frá flugi og hóteli fyrir spring break 2008.........

Já við vorum búnir að velta því fyrir okkur hvort við ættum að taka road trip á þetta....en það eru víst ekki nema 1700km þangað niður eftir.... ekki ósvipað og að keyra ...frá Reykjavík til Reykjavíkur og síðan allaleið til Akureyrar í einum rikk.....ef einhver hefur gert það þá má hann eða hún endilega senda mér email...


Niðurstaðan er því að við ætlum bara að taka flugið ... meiri tími á ströndinni fyrir vikið...

Hótelið Ocean side inn varð fyrir valinu.. lítur bara vel út og er á hagstæðuverði ...linkurinn á hótelið er hér fyrir neðan

http://island.hotels.com/pageDetails.do?childrenPerRoom=0&departureDate=20%2F03%2F2008&arrival
Date=14%2F03%2F2008&destinationId=66831908-5B63-4156-9979-AA50F4E3614F&hotelId=109480&
numberOfRooms=1&adultsPerRoom=2&childAgesPerRoom=

...svaf ekkert í nótt....þannig að ég ætla að segja þetta gott og fá mér hænublund.....spurning hvernig það myndi þýðast yfir á ensku....Chicken nap?????


Friður
Erlendur Kári Kristjánsson
3 athugasemdir

NEW YORK .............................................

23. febrúar 2008 klukkan 21:13
Jæja kominn tími á að skrifa færslu..........


Ég ætla að byrja þar sem frá var horfið í síðustu færslu.... þrátt fyrir að það sé dálítill tími síðan þá .....
Ég og Þórunn fórum sem sagt í Ikea á sunnudeginum eftir að hún kom ....dagurinn byrjaði príðisvel og var veður gott... Ég byrjaði aksturinn á því að stilla inn addressuna hjá Ikea og að því loknu lögðum við af stað.....en fljótlega kom þó í ljós að GPSið var ekki að vinna með mér en það kom þó ekki að sök þar sem ég þekki orðið ágætlega leiðina frá Brooklyn gegnum Manhattan og yfir til New Jersey. Í stuttu máli þá gekk ferðin ágætlega þangað til að GPSið sagði mér að fara beint í stað þess að taka hægri beygju eins og ég var handviss um..... þetta kostaði okkur ábyggilega 20-30 mín við lítinn fögnuð hjá mér... og eftir á að hyggja hefði bara verið miklu betra að hafa slökkt á þessu apparati. Þess má þó geta að þetta tæki var ekki sömu tegundar og úrvals tækið sem ég og afi fengum í okkar ferðalag til Hamptons...... sem bæði fann handa okkur veitingastað og hótel.

Þegar til Ikea var komið tók ég upp blað og blýant í boði hússins og skráði niður númer þeirra hluta sem ég ætlaði að kaupa ....Svefnsófa..sjónvarpsborð.spegil...skórekka (fyrir alla adidas skóna mína svarta jafnt sem hvíta)... já og svo kodda og cover yfir sófann.... þegar þetta var allt saman skráð og frá gengið þá skelltum við okkur á Ikea restaurantinn og fengum okkur vænan skammt af Sænskum Kjötbollum ... síðan oste kage með blaber í eftir rétt....

Þegar við vorum búin að fá afhennt og greiða fyrir það sem keypt var þá ákváðum við að skella okkur í Mollið sem er rétt hjá Ikea....Risastórt... þó það beri ekki mikið á því og þar var deginum og bróðurparti kvöldsins eytt... eða svona um það bil þegar maður var genginn upp að hnjám....þó voru gerð hlé til þess að fá sér hressingu... sem var að sjálfsögðu eins Amerísk og hægt er að hafa hana....Double Wopper, kók og franskar frá BURGER KING...

Án þess að ég ætli eitthvað að vera að auglýsa þetta ágæta moll þá bara verð ég að segja að það kom virkilega mikið á óvart.. og þó við værum alla þessa klukkutíma þarna þá náðum við alls ekki að fara um allt..

Mæli með Elizabeth Moll NEW JERSEY..

já og ég gleymdi að nefna það... að við áttum að skila bílaleigubílnum..... klukkan Fimm en þegar við fórum úr mollinu þá var klukkan rúmlega Sjö.

Við keyrðum síðan áleiðis til New York ... tókum Holland tunnel yfir á Manhattan og fórum síðan yfir Brooklyn brúna yfir til Brooklyn ... þegar þangað var komið þá fannst mér tilvalið að fara á útsýnisstaðinn sem er við River Cafe... og njóta útsýnisins yfir Skýjakljúfana með allri þeirra ljósadýrð....þegar þangað var komið vorum við Stoppuð af mönnum með Cameru og micraphone og spurð hvort við værum til í að leyfa þeim að taka við okkur viðtal... Jú jú það var svo sem í lagi okkar vegna.... Spurningin var ... How Do You Like The Weather? Þórunn var snögg til og sagði einfaldlega It is great......og voru þeir ekkert lítið hissa á því .. enda kom seinna í ljós að hitinn var rétt um mínus 10 á celsíus og feels like eitthvað meira svo .... svo spurður þeir eitthvað fleira ... og endanum hvaðan við værum og ég sagði ICELAND..... og það allveg birti yfir þeim.... og þeir vildu endilega taka þetta aftur ... frá byrjun sem og þeir gerðu og voru ekkert lítið sáttir að hafa náð þessu líka ágæta myndefni og það var greinilegt að þeim fannst það ekki skemma fyrir að við værum frá íslandi.

Við Kvöddum síðan Jim Gately frá Channel 9 news og spurðum að lokum hvenær verður þetta sýnt.. jú bara núna í kvöld klukkan 10. við héldum síðan heim á leið ... heim á FULTON STREET ELEVEN FIFTY SEVEN......

Þegar þangað var komið var ekki eitt einasta stæði að finna .... þannig að ég ákvað bara að gera eins og svo algengt er hérna í hverfinu... að bara Double parka..... sem myndi útleggjast ...á íslensku að (Tvöfallt leggja).. þetta er að vísu ólöglegt en ég hélt að það kæmi svo sem ekki að sök ... og setti bara hazzardinn á og við byrjuðum síðan að ferja allan varninginn úr bílnum og upp í íbúð.... og viti menn koma ekki lögreglumenn út laumi búnir að skrifa sektina einhver staðar úr fjarlægð.... og ég fer og tala við þá og segi þeim að ég verði bara eldsnöggur að þessu og hvort þeir geti ekki gefið mér séns...... og fékk bara til baka Sorry man I have already started to write the tiket ... you see they are numbered.....sorry there is nothing I can do..... shji.... og svo bætti hann við að hann hefði ekki séð að við værum að flytja allt þetta dót úr bílnum...... sælir... hann var náttúrulega klárlega búinn að fylgjast með okkur frá næsta horni...síðan kemur Þórunn með ljósahárið sitt og þeir hreinlega bara bráðna.... og byrja að segja mér frá alskonar aðferðum sem þeir nota til þess að komast hjá því að borga sektir..sem þeir greinilega fá ekkert ósjaldan .. þó að þeir tilheyri lagana armi....Svo til þess að gera úr þessu góða sögu.... þá spyr Þórunn þá hvort hún megi ekki fá að vera með þeim á mynd..... Jú Jú no problem .. very welcome....

Myndina er síðan hægt að sjá hérna á myndasíðunni....

Að öllu þessu loknu ákvað ég að það væri kanski betra að skila bílnum bara um kvöldið heldur en að bíða með það til næsta dags...... við brunuðum því upp á Astor place manhattan og skiluðum bílnum og tókum síðan lestina heim og rétt náðum að komast inn í íbúð og kveikja á sjónvarpinu... á slaginu 10 svo byrjaði fréttatíminn .. og byrjar með fréttum héðan og þaðan af skemmdum á húsnæði og hinu og þessu í þessu líka vondaveðri.... og viti menn síðan bara komum við í sjónvarpinu..hehe ég átti nú ekki alveg von á því að það gerðist ... en þeir stóðu við það sem þeir sögðu...;) Já það er ekki amalegt að hafa hana Þórunni í heimsókn.... ég meina rétt um sólarhringi eftir að hún kom hingað... þá er hún bara komin í Sjónvarpið... fyrir framan augun á milljónum bandaríkjamanna.......spurning hvað hefði orðið ef hún hefði verið hérna aðeins lengur......

Fyndið þegar ég kom í skólann daginn eftir þá voru alveg nokkrir sem komu og sögðu ... Man I saw you on TV last night...... eða Dude you where on TV last night.... hehe já SÆLL ... ekki einu sinni one liner.... en ég sagði svo sem allt sem segja þurfti.... eða ICELAND...

Já svona til þess að slá botninn í þetta þá var gríðarlega skemmtilegt hérna hjá okkur ... rétt eins og myndirnar segja til um...

Já og varðandi ferð mína í Dómshúsið .. þá fór ég þar í gegnum hvert öryggistékkið á fætur öðru .. spurður hvert erindi mitt væri og síðan sendur í röð..... rúmur hálftími leið.... og síðan koma að mér.. og ég labbaði upp að glerinu og ...tilkynnti að ég væri hingað komin vegna þess að ég hafi verið boðaður hingað vegna þess að ég hafi hjólað upp á gangstétt.....YES and WHEN WAS IT... jú í byrjun desember í fyrra og núna átti ég sko von á því að fá dæluna yfir mig .. um að ég ætti að vera löngu búinn að mæta og allt það.... en nei... SIR WE DON´T PROCESS TICKETS FROM DECEMBER UNTIL AFTER MID OF FEBRUARY SO YOU CAN COME BACK SOMETIME AFTER FEB 25th..... ok fine.... þannig að ég sem sé bíð ennþá dóms.... fyrir afbrot mit.....

ætla að enda þetta hér... en það verður update... alveg klárt í næstu viku þegar ég er fer aftur í Criminal Court á 346 Manhattan

já og svo Mæli ég með myndinni.... There Will BE BLOOD... hljómar kanski ekki vel... en er góð mynd og gerist á þeim tíma sem menn eru að byrja að finna Olíu hérna í suður ríkjunum


Kveðja ELLI

PS: öll skrif í gestabók eða comment eru mjög vel þegin ...og hvetja til frekari skrifa...
Erlendur Kári Kristjánsson
3 athugasemdir

NYC 10.FEB Ţórunn frćnka í heimsókn

11. febrúar 2008 klukkan 05:49

Já Sællllllll!!!!

Já mig langar til að biðja alla lesendur þess bloggs afsökunar á langri..mjög langri bið á nýrri færslu...en hérna kemur hún og ég vona að þið hafið bæði af henni gagn og gaman...

Það hefurýmislegt á daga mína drifið síðan ég kom hingað út til Brooklyn núna eftir áramótin...

Helst ber að nefna gríðarlega vel lukkað þorrablót íslendingafélagsins hérna í New York. Blótið var haldið í gamalli kirkju á 76 street og Central park west. Þangað mættu hinir ýmsustu Íslendingar og voru blótgestir um 150 talsins.

Gríðarleg stemming var í húsnu og þegar veisluhöldum var lokið ákvað yngra fólkið að núna væri tími til þess að skella sér á klúbb ... sem var síðan gert og eftir það var farið á Kareokí bar... þar sem hver söngfuglinn tók við af öðrum... hver öðrum betri að sjálfsögðu.

My Cousin Þórunn ákvað síðan að skella sér til mín í viku og var áætlaður komu tími klukkan 18:30 að New York tíma , föstudaginn 8 feb. Af því varð ekki sökum gríðarlegs óveðurs á Íslandi sem sjálfsagt hefur ekki farið fram hjá neinum sem þar dvelst.

Þórunn komst síðan á leiðarenda í gær Laugardaginn 9. Feb. Ég var búinn að leigja Ford explorer jeppa eins og virðist vera vinsælt hérna á þessum bæ, og sótti Þórunni út á flugvöll í félagi við Samer nágranna minn og stór vin frá Palestínu. Eftir að við höfðum komið farangri fyrir á Ellefu Fimmtíu og Sjö Fulton street, ásamt því að fara í sturtu og klæða okkur í Betri gallann þá mæltum við okkur mót við Ólöfu, Jóhönnu, Grjóna og Péturs við íveru stað hinna þriggja síðast nefndu og Heimili hennar Jóhönnu að Fimmtugasta og sjöttastræti á Manhattan. Þaðan var síðan haldið á þann úrvalsveitingastað Asian de Cuba sem er víst hátt listaður á Zaggat listanum... hann er ekki ósvipaður topp tíulistanum á FM Níu Fimm Sjö nema að þessi á víst við veitingastaði. Maturinn var hreint ótrúlegur og verður að segjast að það er ekki ónýtt að byrja dvöl í New York á því að borða á svona stað... í framhaldi af því var haldið á Exploernum góða með sjö sætunum og dúndrandi mússíkinni frá útvarpsstöðinni Hot 97.1 niður í Soho á einhvern klúbb sem síðan lét ekki finna sig og til að gera langa sögu stutta og eftir ennþá styttri Limmósínuferð fannst staðurinn og þar var aðeins slett úr klaufunum... en hlé var þó gert meðan á stuttri og óvæntri uppákomu voru gerð góð skil... ekki ólíkt því sem gert var með þorramatinn á íslendinga blótinu góða. Ég og Þórunn héldum síðan heim á leið.. enda ætlunin að vakna snemma og fara og versla í Ikea ...og kanski kýkja aðeins í eitt moll eða svo ... daginn eftir...


skrifa meira á morgun .... meðal annars um þessa ágætu ferð okkar til New Jersey sem og um sjónvarps viðtal sem tekið var við mig og Þórunni og birt í kvöld á Channel 9 hér í USA..... að ógleymdri ferð minn í dómshúsið á 346 Broadway......(Crimminal Court) notabene


kær kveðja

ELLI
Erlendur Kári Kristjánsson
2 athugasemdir

BROOKLYN

15. september 2007 klukkan 01:45
Já Góðan og blessaðan ... þetta verður fyrsta færslan mín the fall of 2007...

Margt er skemmtilegt er búið að gerast hérna í NYC síðan ég kom 1. sept og eiginlega löngu kominn tími til þess að skrifa það niður...

Áður en að því kemur þá langar mig til þess að koma því að ... að veðrið er búið að vera hreint rosalega gott og eiginlega svo heitt að það er bara varla hægt að vera hérna í íbúðinni hjá mér án þess að vera með A/C ið á fullu.

Ólöf vinkona mín er flutt hingað til new york og býr á 110 stræti. Við erum búin að gera margt skemmtilegt svo sem að fara í picknic í Central park í sól og blíðu og hjólað í Brooklyn og stoppað aðeins á tónleikum í Fort Green Park þar sem voru cirka 25000 manns og svo höfum við farið út að borða og aðeins kýkt út á lífið...

Jói og Ási komu hingað laugardaginn 8 sept og það er búið að vera gríðarlega gott að fá þá í heimsókn. Á sunnudaginn síðasta hittum við síðan Sigga A.K.A Ziggy Palmer og leigðum okkur nýjan Ford Explorer með öllu saman... og fórum í smá road tripp up state í Woodbury Common Outlettið... Það var ekki verslað eins mikið og vanalega sökum þess að það var einhver hörgull á fötum í okkar stærðum en engu að síður var skottið á explorernum fullt af varningi.
Jói og Ási fóru í hjóla túr yfir brooklyn brúna og allaleið  upp á 95 stræti á manhattan og síðan aftur til baka..

Á fimmtudaginn síðasta var frí í skólanum vegna Rosh Hashanah .... sem er Gyðinga hátíð amen. Jói vaknaði ekki fyrr en 9:15 eða um 15 mínútum seinna en um var talað og skuldar mér og Ása andvirði sektarinnar sem Ási fékk fyrir að leggjast á bekk í lestinni sem var nánast tóm. Til að gera langasögu stutta þá var þetta bara Böst og við máttum gjöra svo vel að fara út úr lestinni á Jay Street og Löggan sagði við mig og Jóa að fara bara í burtu meðan þeir yfirheyrðu Ása fyrir þetta alvarlega brot. Þess má til gaman geta að það stendur hvergi í lestinni að ekki megi leggjast á bekkina en hins vegar er búið að hengja upp   A4 blað á Jay street þar sem stendur að þetta sé bannað.... en það þýddi ekkert að tuða ... heldur var smellt 50 dollara sekt á Ása fyrir þetta líka glæpsamlega athæfi

ég held áfram með þetta á morgun

Vil minna fólk á að vera ekkert að taka sénsinn á því að leggja sig á lestar bekk né hjóla upp á gangstétt...

kveðja ELLI
Erlendur Kári Kristjánsson
8 athugasemdir

Nu er komid ad thvi...fyrsta faersla 2007

06. mars 2007 klukkan 19:06

Thad er alveg ljost ad thad fara ad koma inn nyjar faerslur... buinn ad taka slatta af myndum og svona sem eg aetla ad fara ad setja inn....

Talandi um vedrid her i New York ....  fyrir thremur vikum .. voru her feels like -21 gradur a celcius... fyrir thremur dogum var sol..logn og 15 stiga hiti .. og nuna er -11 og feels like -21...

Talandi um ad vedrid breytist hratt heima a islandi og thad se erfitt ad klaeda sig eftir vedri......puff.. eg held eg kvarti ekki meira yfir thvi heima a klaka....

Spring break er a naesta leiti og eg er ad spa i ad skella mer med Sigga og Barda i road tripp nidur til Austin texas.........verdur pottthett lengsti runtur sem eg hef farid a ...smelli kanski ferda tilhogun og frekari upplysingum herna inn... en svona groft a litid held eg ad thetta seu um 3000 milur sem eru um 4700km......

..
Mikid buid ad gerast herna i borginni... sidustu vikurnar.. sem daemi... Atvinnu vidtal hja Sameinuduthjodunum og Glaesi kvoldverdur at the Union League Club i bodi Kaupthings og Ryan Peabody. Daginn eftir var radstefna i Skandinaviuhusinu thar sem saman voru komnir

Erlendur Kári Kristjánsson
2 athugasemdir

Mćttur á klakan

20. desember 2006 klukkan 06:00
Aiight...

Kominn til Íslands í gott jóla frí!!!!!!!!!!!!

Merry Christmas

cheng qui

Wá wá ví va
Erlendur Kári Kristjánsson
1 athugasemd